Átakið "Allir vinna" hefur verið framlengt til 1. janúar 2013 og er stefnt að miklu markaðsátaki með vorinu. Endurgreiðsla virðisaukaskatts verður áfram 100% á árinu 2012 en heimild til lækkunar tekjuskattsstofns hefur verið felld niður.

Unnið er að uppfærslu vefsíðunnar í samræmi við framangreindar breytingar.

Hvernig fæ ég endurgreitt?

Það er einfalt að sækja um endurgreiðslu virðisaukaskattsins. Eyðublað má nálgast hjá skattstjórum eða á vef ríkisskattstjóra. Halda þarf til haga frumritum af öllum reikningum sem greiddir hafa verið vegna vinnu á byggingarstað. Reikningarnir þurfa að vera sundurliðaðir í efniskostnað annars vegar og vinnukostnað hins vegar.

Útfylltu eyðublaði og reikningum þarf að koma til skattstjóra í viðkomandi umdæmi sem endurgreiðir virðisaukaskattinn.

Ef um er að ræða vinnu við nýbygginu þarf að fylla út eyðublað

RSK 10.19

Ef um er að ræða vinnu við viðhald eða endurbætur á húsnæði þarf að fylla úteyðublað  RSK 10.18