- Um hvað snýst „Allir vinna“ átakið?
- Hverjir standa að átakinu?
- Hvernig sæki ég um endurgreiðslu?
- Hvenær fæ ég svo endurgreiðsluna?
- Hvað þarf að fylgja umsókninni?
- Ég stóð í framkvæmdum í fyrra eða árið 2009 – er þessi endurgreiðsla afturvirk?
- Hvað þýðir vegna vinnu á byggingarstað?
- Getið þið nefnt dæmi um endurgreiðslu?
- Hvað gildir þessi 100% endurgreiðsla virðisaukaskatts lengi?
- Fæ ég endurgreitt ef ég borga „svart“?
- Þið talið um allt að 300 þús. kr. skattfrádrátt – getið þið útskýrt það betur?
- Hvenær voru lögin um endurgreiðsluna og skattfrádráttinn samþykkt?
- Hvar finn ég fagmenn?
Um hvað snýst „Allir vinna“ átakið?
Þetta er þjóðarátak til að vekja athygli á endurgreiðslu virðisaukaskatts og skattfrádrætti vegna framkvæmda við íbúðarhúsnæði og frístundahús þegar unnið er að viðhaldi eða endurbótum á húsnæðinu á byggingarstað.
Hverjir standa að átakinu?
Stjórnvöld í samvinnu við Alþýðusamband Íslands og aðildarfélög, VR, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Þessir aðilar taka þátt með það að leiðarljósi að leggja sitt af mörkum við að koma hjólum atvinnulífsins í gang.
Hvernig sæki ég um endurgreiðslu?
Það er sáraeinfalt að sækja um endurgreiðslu á virðisaukaskatti en umsóknareyðublaðið er hægt að nálgast hér eða á vef ríkisskattstjóra, www.rsk.is. Nauðsynlegt er að halda til haga frumritum af öllum greiddum reikningum vegna vinnu á byggingarstað og þurfa reikningarnir að vera sundurliðaðir í efniskostnað og kostnað vegna vinnu. Reikningum, staðfestingu á að þeir hafi verið greiddir og útfylltu eyðublaði er síðan skilað til ríkisskattstjóra.
Hvenær fæ ég svo endurgreiðsluna?
Yfirleitt fæst endurgreiðslan á virðisaukaskattinum innan 15-30 daga, en það getur þó tekið lengri tíma. Ríkisskattstjóri sendir þér svo tilkynningu um endurgreiðslu ásamt frumritum reikninganna. Sérstakur skattfrádráttur reiknast við álagningu opinberra gjalda 2011 og 2012.
Hvað þarf að fylgja umsókninni?
Frumrit greiddra sölureikninga þurfa að fylgja umsókninni. Ef seljandi þjónustu hefur ekki kvittað fyrir greiðslu á reikninginn sjálfan þarf greiðslukvittun að fylgja með.
Ég stóð í framkvæmdum í fyrra eða árið 2009 – er þessi endurgreiðsla afturvirk?
Já, endurgreiðslan á virðisaukaskattinum er afturvirk og hægt að sækja um hana allt að 6 árum aftur í tímann en þá gildir ekki sama endurgreiðsluhlutfall öll árin.
Sérstakur frádráttur frá tekjuskattsstofni er hins vegar einungis vegna kostnaðar á árunum 2010 og 2011. Frádrátturinn er ákvarðaður miðað við útlagðan kostnað vegna vinnu á byggingarstað og byggir á því að þú sért búin að sækja um endurgreiðslu á virðisaukaskatti af sama tilefni. Til þess að fá þennan skattfrádrátt þarf að sækja um endurgreiðslu á virðisaukaskatti fyrir 1. febrúar 2011 ef sótt er um vegna kostnaðar á árinu 2010 og fyrir 1. febrúar 2012 ef sótt er um vegna kostnaðar á árinu 2011.
Hvað þýðir vegna vinnu á byggingarstað?
Handverk fagmanna á staðnum t.d. málningarvinna, trésmíði, pípulagnir eða raflagnir. Eins er endurgreiddur virðisaukaskattur af vinnu vegna hönnunar og eftirlits við endurbætur eða viðhald. Endurgreiðsla tekur til virðisaukaskatts vegna allrar vinnu manna sem unnin er á byggingarstað íbúðarhúsnæðis við viðhald eða endurbætur á því, þ.m.t. vinnu við framkvæmdir við lóð hússins; jarðvegslagnir umhverfis hús; girðingar; bílskúra og garðhýsi á íbúðarhúsalóð. Endurgreiðslan tekur þó ekki til virðisaukaskatts sem greiddur er af eftirfarandi:
Vinnu veitufyrirtækja við lagnir að og frá húsi.
Vinnu stjórnenda vinnuvéla, jafnt þungavinnuvéla sem véla iðnaðarmanna o.fl. á byggingarstað.
Vinnu sem unnin er á verkstæði. Þá skal ekki endurgreiða virðisaukaskatt af vinnu sem unnin er með vélum sem settar eru upp á byggingarstað til aðvinnslu á vöru eða efni til íbúðarbyggingar, endurbóta eða viðhalds, ef þessi vinna er að jafnaði unnin á verkstæði eða í verksmiðju.
Vinnu við ræstingu, garðslátt, skordýraeyðingu og aðra reglulega umhirðu íbúðarhúsnæðis sem ekki verður talin viðhald eignar.
Ekki er endurgreiddur virðisaukaskattur vegna efniskostnaðar eða aksturs.
Getið þið nefnt dæmi um endurgreiðslu?
1. Húsfélag lætur múrhúða útveggi á árinu 2010
| Efniskostnaður | 527.064 kr. |
| Vinna á staðnum án vsk. | 1.012.698 kr. |
| Vsk. (1.012.698 * 25,5%) | 258.238 kr. |
| Heildarkostnaður: | 1.798.000 kr. |
Virðisaukaskattur til endurgreiðslu: |
258.238 kr. |
2. Húsfélag lætur mála sameign 2010.
| Efniskostnaður | 248.156 kr. |
| Vinna á staðnum án vsk. | 956.124 kr. |
| Vsk. (956.124 * 25,5%) | 243.812 kr. |
| Heildarkostnaður: | 1.448.092 kr. |
Virðisaukaskattur til endurgreiðslu: |
243.812 kr. |
3. Einstaklingur lætur vinna trésmíðavinnu heima hjá sér 2010
| Efniskostnaður | 318.183 kr. |
| Vinna á staðnum án vsk. | 493.121 kr. |
| Vsk. (493.121 * 25,5%) | 125.746 kr. |
| Heildarkostnaður: | 937.050 kr. |
Virðisaukaskattur til endurgreiðslu: |
125.746 kr. |
Hvað gildir þessi 100% endurgreiðsla virðisaukaskatts lengi?
Á tímabilinu 1. mars 2009 til 1. janúar 2011 skal endurgreiða eigendum íbúðarhúsnæðis og frístundahúsnæðis 100% þess virðisaukaskatts sem þeir hafa greitt af vinnu manna við endurbætur eða viðhald þess á byggingarstað.
Fæ ég endurgreitt ef ég borga „svart“?
Nei, þú færð einungis endurgreitt gegn framvísun fullgildra reikninga. Rétt er að minna á að ef þú lætur vinna fyrir þig „svart“, þ.e. ef vinnan er ekki gefin upp til skatts, hefur þú ekkert í höndunum sem tryggir lögbundinn rétt þinn til að kvarta yfir framkvæmd verksins eða fá bætur ef eitthvað fer úrskeiðis. Meðal annars þess vegna er rétt að gefa vinnuna samviskusamlega upp til skatts, en að sjálfsögðu felur svört vinna alltaf í sér brot á lögum.
Þið talið um allt að 300 þús. kr. skattfrádrátt – getið þið útskýrt það betur?
Við álagningu opinberra gjalda árin 2011 og 2012 heimilast til frádráttar tekjuskattsstofni 50% af þeirri fjárhæð sem greidd er vegna vinnu vegna endurbóta og viðhalds á íbúðar- og frístundahúsnæði (án virðisaukaskatts) á árunum 2010 og 2011. Hámark frádráttarins er 200.000 kr. hjá einstaklingi og 300.000 kr. hjá hjónum og samsköttuðum. Frádrátturinn ákvarðast út frá kostnaði vegna vinnu við viðhald og endurbætur á íbúðar- og frístundahúsnæði til eigin nota. Heimildin tekur einnig til viðhalds og endurbóta á útleigðu íbúðarhúsnæði utan atvinnurekstrar að teknu tilliti til þeirrar frádráttarheimildar sem gildir samtals um þá vinnu sem greitt er fyrir innan ársins vegna framangreindra framkvæmda. Frádráttur hjóna og samskattaðra einstaklinga skal koma til lækkunar hjá þeim sem hærri hefur tekjuskattsstofninn. Ef þú hefur sótt um endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu manna vegna endurbóta og viðhalds á árunum 2010 og 2011 verður skattfrádrátturinn reiknaður sjálfkrafa við álagningu í júlílok 2011 og 2012.
Ekki er frádráttur vegna nýbyggingar á íbúðar- eða frístundahúsnæði til eigin nota.
Hvenær voru lögin um endurgreiðsluna og skattfrádráttinn samþykkt?
Lögin um 100% endurgreiðslu voru samþykkt á Alþingi 6. mars 2009, sjá hlekk hér: http://www.althingi.is/altext/136/s/0673.html. Nýju lögin um skattfrádrátt voru samþykkt 16. júní 2010, sjá hér: http://www.althingi.is/altext/138/s/1411.html.
Hvar finn ég fagmenn?
Löggiltir iðnmeistarar
Það er ótvíræð trygging fyrir gæðum og réttum vinnubrögðum að skipta við meistara og fagmenn sem hafa tilskilin réttindi. Innan raða Samtaka iðnaðarins eru starfandi meistarafélög sem hafa á að skipa löggiltum fagmönnum til hvers kyns framkvæmda. Meistarar í Samtökum iðnaðarins eru auk þess með Ábyrgðasjóð sem tryggir þér vel unnið verk.






