Allir vinna - allirvinna.is
  • Eyðublöð
  • Spurt og svarað
  • Samstarfsaðilar
  • Um allir vinna
Spila
  • Fréttatilkynning
  • Kynningarefni

Allir vinna er hvatningarátak um atvinnuskapandi framkvæmdir til að vekja athygli á endurgreiðslu virðisaukaskatts og skattfrádrætti vegna framkvæmda við íbúðarhúsnæði og frístundahús þegar unnið er að viðhaldi eða endurbótum á húsnæðinu á byggingarstað. Það eru stjórnvöld í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins sem standa að átakinu.

Hinn landsþekkti teiknari Halldór Baldursson fékk það verkefni að túlka skilaboðin á jákvæðan og uppbyggilegan hátt, en þau fela í sér:

  • hækkun á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við eigið íbúðarhúsnæði og sumarhús í 100% úr 60%
  • skattfrádráttur til einstaklinga sem fjárfesta í viðhaldi á eigin húsnæði sem nemur allt að 200 þúsund króna lækkun á tekjuskattsstofni hjá einstaklingum og 300 þúsund króna lækkun hjá hjónum og samsköttuðum
  • áherslu á mikilvægi þess að öll viðskipti almennings og fagmanna séu uppi á borðinu en með því að útrýma svartri vinnu mætti auka skatttekjur ríkisins og þar með fjárveitingar til almannaþjónustu um 40 milljarða króna á ári, skv. mati Samtaka iðnaðarins

Með átakinu eru landsmenn hvattir til þátttöku í stórum sem smáum verkum og til að beina viðskiptum sínum að innlendri vöru og þjónustu, fjárfesta í viðhaldi íbúðarhúsnæðis/sumarhúsa og leggja þar með sitt af mörkum til atvinnusköpunar á Íslandi. 100% endurgreiðsla á virðisaukaskatti og skattfrádráttur vegna vinnu við eigið húsnæði ýta undir að viðhaldsverkefni af þessu tagi séu uppi á borðinu en átak til að stemma stigu við svartri vinnu er eitt af sameiginlegum hagsmunamálum stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Þá felur átakið einnig í sér persónulega ráðgjöf fagmanna um handbragð við viðhaldsframkvæmdir með leiðsögn byggingadeildar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Hagstæð framkvæmdalán og þátttaka fyrirtækja

Leitað hefur verið til fjármálastofnana varðandi framkvæmdalán til almennings á hagstæðum kjörum og þá mun Byggðastofnun bjóða fyrirtækjum á landsbyggðinni verðtryggð lán til viðhaldsverkefna til 12 ára á 7% vöxtum. Sömuleiðis munu íslensk fyrirtæki vera með vikuleg tilboð á viðeigandi vörum og þjónustu.

Eftirtaldir standa að átakinu ásamt stjórnvöldum:
Alþýðusamband Íslands og aðildarfélög, VR, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Allir vinna - island.is
  • Forsætisráðuneytið
  • SVÞ
  • Samtök atvinnulífsins
  • Nýsköpunarmiðstöð Íslands
  • Alþýðusamband Íslands
  • Samtök iðnaðarins
  • Fjármálaráðuneytið